Listamaður(1934)
Hafsteinn Austmann
Hafsteinn Austmann er íslenskur abstrakt-myndlistamaður fæddur árið 1934 í Vopnafirði. Hann nam við Myndlista- og handíðaskóla Íslands og síðan við Académie de la Grande-Chaumière í París. Hann hefur haldið fjölmargar sýningar bæði á Íslandi og erlendis og starfaði um árabil sem kennari við Myndlista- og handíðaskóla Íslands.
