Listamaður(1979)
Hjalti Parelius
Hjalti Parelius er íslenskur myndlistamaður fæddur í Reykjavík árið 1979. Hann nam hönnun við Fjölbrautaskóla Breiðholts og síðan við Danmarks Designskole í Kaupmannahöfn. Eftir hrun 2008 sneri hann sér að myndlist af fullum krafti og hefur síðan haldið fjölmargar sýningar, þekktur fyrir olíumálverk sín á striga.





















