Listamaður(1945)
Leifur Breiðfjörð
Leifur Breiðfjörð er brautryðjandi í íslenskri glerlist og fyrsti Íslendingurinn til að helga sig glerlistinni einni. Hann lærði við Myndlista- og handíðaskólann á Íslandi og síðan glerlist við Edinburgh College of Art. Verk hans prýða kirkjur og opinberar byggingar víðs vegar, þar á meðal Hallgrímskirkju, Keflavíkurflugvöll og dómkirkjur í Edinburgh og London. Hann hlaut riddarakross Fálkaorðunnar árið 1995.
